Um þennan vef

Tóbakstugga er vefur sem skráir mistök í þýðingum.

Ritstjórn þessarar síðu ber mikla virðingu fyrir þýðendum. Þetta er vanþakklátt starf, oft á tíðum illa borgað, svo að þýðendur verða að vinna í akkorði, og vegna flýtisins þá gera menn óhjákvæmilega mistök. Við vonum að þessi síða veiti bæði þýðendum og atvinnuveitendum þeirra aðhald og þýðingar og aðstaða þýðenda á Íslandi batni fyrir vikið.

Þau sem skrifa á vefinn eru:

Jósi , josi@klaki.net, færslur: 26
Stebbi , stefanh@simnet.is, færslur: 7
Bragi , bragi@klaki.net, færslur: 4
Sigga , sigga69@strik.is, færslur: 2
Svabbi , muzak@simnet.is, færslur: 2
Vala , valabjarts@hotmail.com, færslur: 1

Siðareglur

Ritstjórn tóbakstuggu skrifar ekkert nafnlaust, við göngumst við öllu sem við skrifum og pössum okkur að skrifa ekkert vísvitandi ærumeiðandi þó við gerum stundum góðlátlegt grín að þýðingum.

Við ætlumst þessvegna til þess að þeir sem skrifa ummæli við færslurnar hérna hagi sér eins, gæti kurteisi og skrifi undir réttu nafni. Ummæli sem ekki hlýða því verður eytt.

Ekkert html er leyft í ummælum, en vefslóðir sem byrja á http:// verða sjálfkrafa að smellanlegum tenglum.