Vala S. Valdimarsdóttir

Human Nature (DVD útgáfa)

Þýðandi: Vala S. Valdimarsdóttir Miðill: Bergvík

Þessi snilldarmynd eftir Charlie Kaufman og Michel Gondry fjallar um rithöfundinn Lilu og vísindamanninn Nathan og tilraunir hans til að gera siðmenntaðan mann úr villimanninum Puff sem þau finna úti í skógi. Í atriðinu þegar Puff finnst segir Nathan um hann: "What do you suppose he is, a survivalist?". Þarna var hann sumsé að spá í því að þessi nakti maður úti í skógi væri e.t.v. maður sem vill búa í náttúrunni og lifa á henni eins og fólkið á þessari síðu vill gera. Þýðandinn þýddi þetta hinsvegar: "Ætli hann hafi lifað af slys?". Betra hefði verið að þýða "survivalist" sem náttúruunnanda eða eitthvað slíkt.
Síðar í myndinni kemur dvergur nokkur á tilraunastofuna til Nathans og snýst samtalið fyrst um hve erfitt sé að leggja hjá tilraunastofunni. Nathan segir: "We´ll be happy to validate your stub". Í bandaríkjunum er í mörgum borgum starfrækt svokallað "parking validation" kerfi sem gengur út að það fyrirtæki geta stimplað miða (e. stub) sem viðskiptavinir þeirra koma með og þá fá þeir að leggja án þess að greiða í stöðumæli. Þýðandinn lagði hins vegar allt aðra merkingu í þessa saklausu setningu, "We´ll be happy to validate your stub", og þýddi þetta: "Við munum fúslega líta á þann litla sem karlmenni". Dvergurinn í þessu atriði er ábyggilega mikið karlmenni og enginn (nema þýðandinn!) dró það í efa...