CIC myndbönd
I Went Down
Í myndinni kemur fyrir skilti sem staðsett er í móttöku á hóteli. Meðal annars kemur fram á skiltinu R&R sem er skammstöfun á Rest & Recreation. Þýðandinn pikkar þetta eitt út af skiltinu og ritar sem R&B sem einnig útleggst sem Rythm & Blues. Án þess að vera að andmæla þeim möguleika að staðarhöldurum finnist gaman að R&B tónlist verður að teljast réttara að hafa annað hvort sleppt því að þýða skiltið þar sem það var frekar í bakgrunni og kom söguþræðinum ekkert við, eða að þýða það sem H&A (Hvíld og Afþreying).