Ásthildur Sveinsdóttir

At Home With The Braithwaites - 27.08.03

Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir Miðill: RÚV

Í þessum þætti giftist Virginia Braithwaite nágrannakonu sinni Megan Hartnoll. Þegar þær stöllur eru á leið í brúðkapsferðina opnar Megan umslag frá móður Virginíu sem inniheldur brúðkaupsgjöf sem er ávísun. Þegar Megan sér upphæðina dæsir hún og segir: "That stingy bitch! She's left a naught off." Seinni helmingur þessarar setningar var þýddur: "Það verður enginn afgangur."
Þarna hefði verið réttara að segja: "Hún gleymdi einu núlli", enda var Megan að kvarta yfir nísku móður Virginíu.

Ed, 26.3.2003

Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir Miðill: RÚV

Í þættinum Ed á RÚV, miðvikudaginn 26. mars voru persónur að fara á grímuball klæddar sem Sonny Bono og Cher. Þau spurðu síðan konu sem var í karlavandræðum hvort hún vildi koma með því "...we could use a Chastity". Þetta var þýtt sem "...við getum notað skírlífsbelti", en það er kolröng þýðing. Í þessu samhengi er átt við Chastity Bono, dóttur Sonny og Cher, en hún er lesbía og baráttukona fyrir réttindum samkynhneigðra. Brandarinn um að konan í karlavandræðunum væri eins og lesbía fór þannig alveg forgörðum.