Law & Order, 20.6.2004
Hinir knáu lögreglumenn í þessum þætti voru að skoða skjöl sem tengdust málinu og einn þeirra sagði: "This looks like a 20th generation photocopy". Þýðingin var hinsvegar: "Þetta lítur út eins og ljósrit frá 20. öld".
Hið rétta er að þarna var verið að tala um skjal sem búið var að ljósrita 20 sinnum. Það er svo sem hægt að giska á að skjalið sé frá 20. öld en slíkar getgátur eiga varla heima í þýðingirtexta...
Jósi skrifaði 20 júní 2004, kl. 15:53
| (Tracback)