Narc

Þýðandi: Kolbrún Sveinsdóttir Miðill: Smárabíó

Þó að þessi mynd hafi markað þau tímamót að hafa titillinn þýddan í dagblöðum og auglýsingum ("Fíknó", flott þýðing) þá voru tvær hvimleiðar þýðingar í myndinni sjálfri. Lögreglumennirnir töluðu um deild innan lögreglunnar sem fjallar um "vice" glæpi, og var hún í þýðingunni kölluð hinu mjög svo almenna nafni "glæpadeild". Þar sem "vice" deildir i BNA fjalla um vændi og klám hefði verið skárra að þýða þetta sem t.d. "siðgæðisglæpadeild" eða eitthvað þvíumlíkt. Svo var í einu atriði talað um eiturlyfjasala sem að seldi "meth" úr íbúð sinni. Þýðandinn kom með góða tilgátu um hvað "meth" þýddi og skrifaði "meþadón", sem er lyf skylt heróíni. En málið er að í daglegu tali vestra er "meth" stytting á methamphetamine sem er afbrigði af amfetamíni.

Jósi skrifaði 6 júní 2003, kl. 01:18 | (Tracback)
3 Ummæli

"þýddann", hvað eru mörg enn í því?

Bidda skrifaði 8 júlí 2003, kl. 16:42

Djö a-n regla!

Jósi skrifaði 9 júlí 2003, kl. 00:33

reyndar er meth notað aðeins yfir Methamfetamín eða "chrystal meth", meþadón er löglegt lyf notað til að losa fólk undan heróífíkn og gengur því oftast bara undir nafninu meþadón annars má finna góðan og tæmandi lista fyrir upprennandi dópista hérna á http://www.expomed.com/drugtest/files/drugterms.pdf

SlimJimy skrifaði 9 september 2003, kl. 17:48

Bættu við ummælum (reglur)









Muna eftir mér?